smá bloggEygerður Ósk Tómasdóttir

Já ákvað að blogga smá...veit ekki hvort einhver les enn því jú ég er eigilega alveg hætt við þetta. Núna er maður bara að skoða sig á facebook. En hér er allt voða fínt að frétta. Litla frænkan úr borginni er í heimsókn hjá okkur og kemur með okkur suður svo það er stuð á þeim frænkum hér. Ein kartafla hjá þeim komin í hús og hehe held að þær verði ekki fleirri þar sem að þær voru mjög hissa á að jólasveinnin hefði gefið þeim kartöflu, en mæli alveg með þessi því þetta virkar allavegana hér og vonandi er nó eitt skipti. En litli prinsinn á heimilinu dafnar rosa vel. Hann er bara yndislegur, svo góður og brosmildur bara yndislegur í alla kanta.
Við erum að koma suður núna á laugardag en við sjáum svo eftir því að hafa pantað flug fyrir jólin því okkur langar svo að vera hér fyrir austan heima hjá okkur um jólin og fara suður milli jóla og nýárs...bara glatað að vera að ferðast með pakka fram og til baka EN næstu jól verða heima hjá okkur það er ákveðið sko. Benedikta er löngu búin að ákveð að hún verður hjálparhönd bróðir síns um jólin, hún mun aðstoða hann s.s við pakkana, hehe hún ætlar að opna alla pakkana hans sem er bara æði en hehe er alveg með mynd af því í hausnum því síðustu jól var bara kapp hjá henni að sjá hvað væri í öllum pökkunum sínum svo hehe þetta verður eitthvað kapphlaup hjá þessari elsku. Verðurm einnig í þorló á áramótunum en þá veður prinsessan mín hjá pabba sínum maður verður víst að sætta sig við það. En allt gengur vel hér, jólaundibúningurinn bara fínn og allt verður hreint og fín þegar við förum en mér finnst alveg must að það sé þannig að maður komi heim í hreina íbúð, það bara VERÐUR að vera þannig. Öll jólainnkaupinn nánast búinn reyndar Valli og sonurinn eftir og tveir frændur, en það er nú bara mjög lítið. Jólakortinn einnig farin úr húsi sem að maður sendir, svo labbar maður auðvitað með kortin bara hér í sveitinni. En ætla að láta þetta gott heita í bili...annars er bara myndasíðan mín www.picasaweb.com/benedikta03 reyni að vera dugleg að setja þar inn myndir.
Knús og Gleiðileg jól allir.

Sölukonan í sveitinniEygerður Ósk Tómasdóttir

Jebb það er ég. En þannig er að ég er núna farinn að selja Lagerinn af barnaflísfatnaði sem að heitir Balnco y Negro sem er hágæða flísfatnaður, íslensk hönnun og ísl framleiðsla, sér útbúinn fyrir ísl veðurfar. Ég er að selja hann já með meira en 50% afslætti hérna heima og á netinu. Og t.d með lambhúshetturnar að það er hægt að hafa þær fyrir neðan höku og svo einnig að draga þær upp fyrir nef þegar að kalt er og það er bara æði í snjó og roki og já bara ísl veðri. Það eru nokkrar fullorðinshúfur og þær eru æði.
En þetta er s.s margskonar húfur, húfubönd, Flís og bómullar, flísteppi ungbarna, sokkar, vettlingar, treflar á alla, pokagallar, ungbarnagallar, flíspeysur, flísbuxur, ermi og skokkur. Þannig ef ykkur vantar jólagjafir eða bara góðan fatnað á börninn þá bara endilega verið í bandi. Er að koma suður svo að ég get tekið með mér fyrir þá sem að vilja.
Endilega kíkið á myndir á barnalandi undir Flísfatnaður slóðin er  http://barnaland.is/barn/10389/

Knús og kveðja

Smá FréttirEygerður Ósk Tómasdóttir

Já ákvað nú að koma með smá fréttaskot. En héðan er allt voða fínt að frétta. Litla kút honum nafnar rosalega vel. En hjfr.kom að vikta hann í gær og á 5 dögum var hann búinn að þyngjast um 160gr sem er mjög gott, en það er áætlað eða miðað við svona 25gr á dag. En hún kom aukaferð í gær því síðastliðin föstudag kom hún og þá var hann bara búinn að þyngjast um 80gr á 7 dögum, en samt í heildina búinn að þyngjast mjög vel, en á rúmri vikur þegar að hann kom heim þá hafði hann þyngst um 380gr sem var rosalegt. En í stuttu máli er hann bara að þyngjast rosalega vel og er bara æðislegur. Hann er mjög góður, mjög svipaður og Benedikta var sem ungabarn. Bara fær sinn sopa, sinn lúr og bara vakir og er endalaust góður. Benedikta er alltaf jafn ánægð með hann, endalaust dugleg að hjálpa mér stundum of dugleg en það er bara æðisleg, ekkert abbó enn sem komið er. Við erum búinn að fara með hann nokkrum sinnum út að labba og pöntuðum pall til að setja á vagninn sem Benedikta stendur á þegar við förum út að labba, mjög þægilegt.
Mútta og Helga Guðrún komu um daginn í heimsókn yfir helgi og voru að dáðst að litla kút, bara æði að fá þær í heimsókn. En ekki mikil gleði á sunnudeginum þegar að þær fóru, litlu skvísan mín var ekki kát að þær þyrftu að fara og langaði bara að fara með þeim og mig langaði líka. En ekki svo langt þar til við komum suður En við komum öll suður 22 oktober og ætlum að skíra 26 okt. Erum ekki enn alveg komið með endanlegt nafn en það er allt saman að koma. Mér finnst svo erfitt að finna nafn á kút, en við erum komið með fyrsta nafnið en seinna nafnið er ekki komið...erum með tvö nöfn sem að koma til greina í seinna nafn og já þetta er bara mjög erfitt. Valli fer svo aftur austur 28 okt því hann þarf að fara að kenna en ég og krílinn mín verðum til 1.nov á suðurlandinu. Svo förum við aftur í des. Allt saman skipulagt hér í sveitinni hehe ekki mikið annað að gera Glottandi
Benedikta er byrjuð í skólahóp á leikskólanum og gengur bara glimrandi vel. Við erum hér heima byrjuð að læra stafina og byrjuð að skrifa orð og þess háttar og hvað stafirnir segja og henni finnst þetta bara rosalega gaman. Svo erum við svona að byrja að hjálpa henni að læra að lesa og jájá þetta kemur allt saman. Valli leyfði henni svo í gær að fara í tölvuna og fara inn á umferd.is í einhverskonar umferðarleiki í gær og hehe hún var svo að standa sig þessi elska. Var mikið erfitt að hætta þegar að hún átti að fara að sofa. En við þurfum bara að redda okkur einni snúru í heimilistölvuna til að starta henni þá er tilvalið fyrir hana að fara í hana í leiki og þá leiki sem að hjálpa henni stafapúkana og þess háttar.
En þarf að fara að sinna litla kút mínum....svo reyni ég að vera dugleg að setja inn á myndasíðuna www.picasaweb.com/benedikta03

loksinsEygerður Ósk Tómasdóttir

Jæja núna er kútur komin í heimin. Kom í heimin aðfaranótt þriðjudags eða 2.sept. Hann kom sér í heimin 2:57 og var 14 merkur og 53 cm. Hann er svo yndislegur í alla staði og er alveg dásamlegur. Benedikta er svo stolt af honum og er stoltasta stóra systir í öllum heiminum, alveg í skýjunum með hann enda ekki annað hægt. Erum eitthvað aðeins farin að ræða nafnið og jú það gengur bara allt í lagi enn sem komið er, en ekki búið að negla neitt. En ætla ekki að hafa þetta lengra. Er búinn að setja inn myndir á myndasíðuna www.picasaweb.com/benedikta03.

3 dagarEygerður Ósk Tómasdóttir

Já það eru ekki nema 3 dagar þar til að ég er skráð. Tíminn rosa fljótur að líða. Ég fór í skoðun í gær á Norðfjörð og kútur er búinn að skorða sig og er alveg tilbúinn að koma í heiminBrosandi. Skoðaði einmitt í leiðinni fæðingardeildina og hún er bara mjög fín. Öðruvísi en í bænum...mun minni og já held bara meira kosý, en það er pott þett mun skárra að liggja þar inni heldur en í bænum. Spurði einmitt ljósmóðirinna hvort að hún gæti bara ekki gefið mér eitthvað eða gert eitthvað til að koma mér af stað hehe ljúka þessu af.... en neiii þetta er bara erfið byð.  Ég held því bara fram að kútur ætli að leyfa mér og stóru systir að fara í klipingu á morgun  og svo lætur hann sjá sig, það hljómar allavegana vel fyrir mig. En annars er allt tilbúið fyrir kút, og hann er svo hjartanlega velkomin í heimin helst í gær. 
Fór einmitt líka í gær á Egs að ná í Kötu og Heru...þær eru komnar á Eskifjörð city og hehe ekki frá því að hún eigi bara eftir að setjast hér að Hlæjandi. En bara æði að fá þær hingað.
En annars er bara flott að frétta héðan...en VONA bara að það næsta sem að ég skrifa verði að kútur sé komin í heiminKoss

komin á austurlandiðEygerður Ósk Tómasdóttir

Já við erum komin heim á austurlandið. Búinn að vera fyrir sunnan í mánuð og vá það var bara æði. Mig langar orðið bara að flytja þanngað aftur. En við vorum í  mánuð fyrir sunnan og höfðum það æðislega gott, vorum reyndar ekkert of dugleg að fara í heimsóknir enda er maður ekkert neinn orkubolti síðustu vikurnar. En svo kom maður líka heim með mann með grá hárHlæjandi en Valli varð þrítugur 13 ágúst, og hann var með smá party heima hjá Kötu og það var bara mjög gaman. Um verslunarmannahelgina var landsmót UMFÍ í Þorlákshöfn og við vorum á því og vá hvað það var æðislega gaman bara. Íþróttaaðstaðan heima er alveg frábær. Það sem að er búið að gera þarna er bara stórkostlegt. Öll aðstaða komin og topp aðstaða fyrir hverja íþróttagrein.
 Þessa dagana erum við bara að doka við eftir að litli kútur fari að láta sjá sig, en hann er sko meira en velkomin í heimin, það er allt tilbúið, vaggan komin saman og búið að þvo allt saman, ég verð svo glöð að fá hann í fangið úr bumbunni. Þetta er orðið frekar þreytt allt saman. Nafnavalið er svona lala...gengur og gengur ekki, erum ekki alveg sammála, en það kemur allt saman. Allavegana verður skírt á suðurlandinuGlottandi.  Benedikta er að fara að byrja í leikskólanum í dag en hún hefur ekki verið í leikskólanum síðan í lok maí, þannig að hún er búinn að fá langt og gott sumarfrí þessi elska. En hún var vöknuð rúmlega átta í morgun þannig að ég held að það sé komin góður spenningur í hana sem er bara gott. En að hugsa til þess að hún eigi eftir bara einn vetur í leikskóla finnst mér bara vera skrítið, litla stelpan mín, en hún er víst ekkert lítil lengur og hún lætur mig alveg heyra það svona  af og til jújú enda að verða stóra systir.  En ætla að fara að hjálpa þeim vinkonum hérna, það er verið að punta dúkurnar og sumt farið úr skorðum. Knús Koss

jeyEygerður Ósk Tómasdóttir

Jæja þá er maður búinn að láta klippa sig og svona og er ferðinni heitið suður á eftir. Við leggjum af stað um tvö leitið og komum suður í kvöld. En við erum að fara suður til að ná í elskuna mína hana Benediktu Diljá..úfff búinn að sakna hennar svo mikið. En fæ knús frá henni í kvöld. Svo erum við líka að ná í sem mesta barnadótið, en allt dót fyrir bumbubúann er fyrir sunnan. Svo erum við líka að fara kveðja systir Valla sem að er að fara að flytja með sína fjölsk til Hollands. Svo er ferðinni heitið norðuleiðina heim á sunnudag, en við förum í brúðkaup rétt hjá Blönduósi, svo munum við halda austur um kvöldið. Þetta veðrur strembið en vonandi gaman. Bumbubúinn er alveg í essinu sínu, líf og fjör hjá honum, hehe vona að hann muni róast þegar að hann kemur í heiminn, ætli hann sé ekki bara svona spentur að hann getur ekki verið kyrr??? hmm jújú segjum það bara því þetta á eftir að vera bestasta barn, ósak eftir Benediktu 2 því hún var og er svo mikið mestasta og bestasta yndi þessi elska.  En svo ætlum við að leggja í hann aftur suður 25 júlí og vera í einhvern tíma, eða um tvær vikur. Þá höfum við nægan tíma í allar heimsóknir, eða allavegana mjög margar vonandi.  EN ætla að halda áfram að pakka og svona...leggjum af stað leið og Valli kemur heim en hann er núna með grill og einhver skemtilegheit í leikjaskólanum, lokadagur á námskeiði eitt í dag. En læt heyra í mér síðar.

fréttir af austanEygerður Ósk Tómasdóttir

jújú mín ekki alveg að standa sig í þessu. En annars er allt fínt að frétta þannig séð. Benedikta mín er fjarverandi, en hún er hjá pabba sínum og uff hvað ég sakn hennar mikið, alveg ömulegt að hafa hana ekki hérna hjá manni. En við förum suður fyrstu helgina í júlí að ná í skvísuna mína. En þá skjótumst við suður á fös, verðum á laugardegi á suðurlandinu svo förum við í brúðkaup á sunnudeginum og höldum áfram austur. EN við náum í skvísuna og svo tökum við sem mest af barnadótinu austur, en það er allt saman fyrir sunnan. Þetta verður strembið en þetta hefst allt samanGlottandi. Svo ætlum við að fara aftur í lok júlí suður og verðum þá í tvær vikur allavegana, förum austur um miðjan ágúst svo er búmbubúinn væntanlegur í lok ágúst, svo jújú tímin er svo fljótur að líða. En munur milli meðganga er svaðalegur, velti því fyrir mér þar sem að meðgangan með Benediktu var svo fín og Benedikta er algjört englabarn, hvort að bumbubúinn verði einhver skriðdreki þar sem að meðgangan er búinn að vera frekar erfið?. Já það á nú allt eftir að koma í ljós.
Svo ætlum við að flytja Benediktu í stærra herbergi þegar hún kemur heim, en þá fer hún úr tvemur herbergjum í eitt stórt, dótaherbergið verður tölvuherbergi, Benedikta fær núverandi tölvuherbergi og bumbubúinn herbergið hennar Benediktu, og Benedikta er búinn að ákveða svona nokkurnveginn að við munum gera herbergið að prinsessuherbergi og jújú við reynum að koma á móts við það.
En vá erum við eitthvað að fara að tala um þetta bensínverð? það kostaði rúm fimm þús að fylla bílinn minn þegar að ég keypti hann en það kostar um tíu þús í dag? hvað er í gangi segir maður! En eina sem að skeður að það hækkar og hækkar, alveg grátlegt. Mun ríkið eitthvað koma á móts við þjóðfélagið? það er þá ekki fyrr en seint og síðar þar sem að það tekur allt mjög langan tíma hjá þessum elskum að skoða hlutina og svo annan eins tíma að vinna út hlutunum. En ég fékk einmitt mail í gær áskorun um að hætta að verla við stóru bensínstöðvarnar, versla eingöngu við atlandsolíu og ÓB t.d. EN við íslendingar erum nú ekki mikið fyrir það að standa lengi við mótmæli, þetta er í tali í þjóðfélaginu og ekki mikið meira en það. 
En svo reyni ég að vera dugleg að setja inn myndir á myndasíðuna Koss

1.dagur :)Eygerður Ósk Tómasdóttir

Komnar inn nýjar myndir á heimasíðuna www.picasaweb.com/benedikta03 En þar eru  myndir t.d af sjómannadagshelginni hér á Eskifirði. Dagskráin hér var rosalega góð og maður var að alla helgina. Var reyndar að vinna á sunnudaginn frá 1-16, en það var nú allt í gúdí. En á laugardagsmorgun var byrjað á því að fara hér upp í sveit á hestbak, Benedikta ætlaði nú ekki að fara fyrst á bak en svo fóru hún með vinkonu sinni og þá var ekkert aftur snúið skal ég ykkur segja. Hún fór þarna nokkrar ferðir og var alveg rosalega gaman hjá henni. Svo efitr hádegi fórum við í siglingu, að þessu sinni fórum við í lögguskipið (varðskipið) eins og Benedikta kallar það, það var rosa gaman. Svo var dagskrá t.d. róður og þess háttar upp á Mjóeyri, og í róðrinum þá vann auðvitað kvennalið Hulduhlíðar róðurinn og kallalið kennara unnu einnig. Svo á sunnudag þá fór Benedikta að veiða niður á bryggju í dorgveiðikepni og fékk hún einn þorsk:) Valli var meira að segja svo góður við stelpuna sína að hann fór nú bara og keypti handa skvísunni eitt stk veiðistöng. Svo voru hoppukastalar hérna og margt fleirra eftir hádegi. Þannig þessi helgi var alveg algjört æði.
En á morgun erum við mæðgur að koma suður, uff get nú bara varla beðið:) Stefni á að sem flestar heimsóknir, en maður nær aldrei ölli sem að maður ætlar sér, en bara markmið sem flestar, en þar sem að orka mín er ekki upp á rosalega marga fiska þá verð ég ekki að alla daga.  Maður fær fult af fötum á Benediktu þar sem að hún Arnar mín var út í Koben og keypti smávegins á skvísuna mína, takk Arna mínKoss . Svo mun maður fara í gegnum barnafötinn og taka það hvíta með sér austur og jafnvel einhvern annan lit Hlæjandi. En það er nú ekki svo langur tími eftir að krílið okkar komi í heimin, Benedikta er svo spennt það er komið fult plan hvernig þetta verður allt saman, hvernig hún ætlar að hjálpa og hvað hún ætlar að gera og þess háttar. En hún let mig vita um daginn að hún myndi als ekki vilja skipta á kúkableyjum ,hún gæti það sko als ekki,kannski pissubleyjum  hehe þessi elskaHlæjandi. En ohh get bara hreinlega ekki beðið eftir að koma suður, hitta fólk og jú svo kíkja á nýjar húsið hjá Björk systu og famelí í þorló og æ bara komast aðeins í burtu og slaka á og jújú alltaf er gott að koma heim til mömmu gömlu. En hef þetta ekki lengta í bili.

Sjáumst sem flest bara í vikunni :)

17 dagar ...Eygerður Ósk Tómasdóttir

þar til ég og Benedikta komum suður...jebb get bara ekki beðið...komum 3.júní, finnst svo nauðsynlegt að komast suður og myndi sko koma mun oftar ef það væri ekki svona hroðalega dýrt. Já kannski segir svona aðeins um það hversu gaman er að búa hér...eða já mér finnst allavegana mjög nauðsynlegt að komast suður...eða bara komast heim eins og ég segi. En heima er alltaf best þannig er það bara. En mig er langað að fara að flytja suður mjög mikið orðið..eða þetta nátturulega gengur bara svona upp og niður hér. 
Annars er allt fínt að frétta svona...fórum á Akureyri síðustu helgi og það var rosa fínt að komast í menninguna þar. Við vorum s.s með bústað á Illugastöðum sem að er 45 km fyrir utan akureyri. Benediktu fannst þetta algjört æði. Fyrsta sem að hún gerði þegar að við komum í bústaðinn var að skella sér í pottinn og hehe já hún hefur farið svona 20x yfir helgina.Svo var auðvitað farið á Akureyri í menninguna og verslað smá og umm fórum á Subway...ummm það er svo mikið æði. Ætli ég fái aldrei nó af því ?  En er búinn að setja inn myndir á myndasíðuna www.picasaweb.com/benedikta03 og þar eru myndir af ferðinni Glottandi . Svo er litli bumbubúinn bara að stækka og stækka, honum bara dafnar vel...en meðgangan er það bara ekki alveg að ganga nóu vel. Það er alltaf eitthvað nýtt og nýtt að koma upp og svo er maður komin með í bakið og endalausa verki í bumbuna...ef maður fer út að labba í 10 mín er maður uppgefinn v/verkja í bumbunni...og ef maður er að gera eitthvað bara sem tekur smá á t.d ryksuga, skúra,taka til, lyfta hlutum sem maður þarf að gera og good hvað það er pirrandi. Svo farinn að finna svo mikið til í bakinu neðalega, þarf að finna mér nuddara hér til að nudda yfir það öðru hverju, þá verð ég vonandi góð. En hmm ætli það er til eitthvað sem að heitir "nuddari" hér á austurlandi? ekki trúi ég því...En ví er búinn með þessi tvö fög sem að ég tók og held að ég hafi bara náð þeim báðum, trúi ekki öðru. Svo er maður að velta því fyrir sér hvort að maður ætti að taka fög í sumar í skóla...kannski bara eitt eða tvö, en er ekki alveg að nenna því, þar sem mig langar ekki að vera að læra neitt sumar bara njóta sumarsins eins og maður getur. En ætla að fara að gera eitthvað að viti hérna...annað en taka til...ná í dóttir mína og kíkja rúnt kannski bara í gluggaveðrinuKoss 

Aðalvalmynd

Leit

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Eygerður Ósk Tómasdóttir
  • Netfang: eygerdur@simnet.is
  • Staður: Fjarðarbyggð
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Sjúkraliði
  • Hjúskaparstaða: Sambaúð ;)

Nýjast á HumorPix

Funny Images, When helmets make no sense Funny Images, I actually like some of them but I found this funny! Funny Images, Damn right Funny Images, When you see it… Funny Images, People who think outside the patterns are special! Funny Images, May the force be with you.

Leikur dagsins

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hvað mun ég endast lengi hér á austurlandinu

Atburðarteljari